Uppfærsla World Class Akureyri

Í sumar fara fram spennandi breytingar á stöðinni okkar í Strandgötu á Akureyri. Framkvæmdir munu fela í sér stækkun á tækjasal, infrared hóptímasal verður bætt við auk þess sem Pilates Club mun opna í stöðinni. Ásamt því mun WCGW og Laugar Spa verslun einnig vera staðsett í stöðinni.

Samhliða þessum breytingum lokar starfsemi Aqua spa. Aqua Spa verður opið í núverandi mynd út maí, við hvetjum því þá sem eiga gjafabréf og/eða inneign að nýta þau á næstu mánuðum. Eftir það gilda gjafabréfin í Laugar Spa snyrti- og nuddstofu í Reykjavík og í verslun okkar á Akureyri og í Kringlunni

Við hlökkum til að bjóða ykkur velkomin í uppfærða og enn betri aðstöðu í World Class Akureyri.