Mynd af Jóhann Kristján Valdórsson
Til baka í einkaþjálfara

Jóhann Kristján Valdórsson

Ég hef stundað styrktarþjálfun í yfir 36 ár og hef alla tíð haft brennandi áhuga á hreyfingu, heilsu og lífsþrótti. Með reynslu úr líkamlega krefjandi störfum og eftir að hafa unnið mig til baka úr alvarlegum vinnuslysum veit ég hversu mikilvægt það er að byggja upp styrk sem nýtist í daglegu lífi.

Ég býð upp á alhliða einkaþjálfun og litla hóptíma fyrir allt að fjóra einstaklinga. Markmið mitt er að hjálpa fólki að verða sterkara, hreyfanlegra og hraustara – ekki bara til skamms tíma heldur til lífstíðar.

Hvort sem markmiðið er að njóta útivistar, leika við börnin eða barnabörnin, bæta heilsuna eða einfaldlega líða betur í eigin líkama, þá vinnum við saman að því að skapa varanlegan og sjálfbæran lífstíl.

Menntun

· Einkaþjálfaranám hjá World Class

· Nordic Personal Trainer Certificate (í námi)

Mottó „Lífið er bara núna – lifðu því til fulls.“