
Bleikur Barre
- Vönduð kennsla og fræðsla.
- Aðgangur að öllum opnum tímum á öllum stöðvum World Class.
- Aðgangur að Laugardalslaug, Sundlaug Seltjarnarness, Breiðholtslaug, Árbæjarlaug, Lágafellslaug, Sundlaug Hellu, Sundlaug Akureyrar, Sundhöll Selfoss og Vestmannaeyjar.
- 20% afsláttur af stökum degi/skipti í Betri stofuna.
Kennari: Andrea Sigurðardóttir
Bleikur barre með Andreu til styrktar Bleiku slaufunni 24. október 💗
Æfum og styrkjum saman í bleikum Empower Barre tíma laugardaginn 24. október kl. 9:50.
Tíminn byggist á Empower Barre æfingakerfinu sem sameinar klassíska barre þjálfun, sem á uppruna sinn í ballett, og kraftmiklar cardio lotur með Jane Fonda ívafi. Æft er með léttum áhöldum í takt við tónlist í infra heitum sal og hentar tíminn jafnt byrjendum sem lengra komnum.
Í anda Bleiku slaufunnar hvetjum við konur til að sjá sig, hlusta á líkamann og huga að eigin heilsu.
📍 World Class Laugum
• 24. október · kl. 9:50–10:50
• Bleikur gjafapoki og Bloom drykkur fyrir alla þátttakendur
• Þátttökugjald: 4.900 kr. sem rennur óskert til Bleiku slaufunnar.
Takmarkað pláss, tryggðu þér dýnu og hreyfum okkur saman fyrir mikilvægt málefni 💗